|
Bernharður Wilkinson
hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi sem kennari, flytjandi og stjórnandi, frá því hann réðst
til Sinfóníuhljómsveitar Íslands haustið 1975. Orðstír hans sem stjórnanda vex stöðugt og í
febrúar 1999 var hann ráðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Bernharður hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit æskunnar, Lúðrasveit æskunnar og Kammersveit
Reykjavíkur. Hann stjórnar einnig sönghópnum Hljómeyki. Bernharður hefur leikið með Blásarakvintett
Reykjavíkur frá stofnun hans en kvintettinn, sem fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir, er orðinn heimsþekktur
og hafa verið gefnir út átta geisladiskar
með leik þeirra félaga. Bernharður Wilkinson var kórstjóri Söngsveitarinnar Fílharmóníu frá 1996 til 2003 hélt hanna áfram á
þeirri braut sem fyrirrennarar hans mörkuðu um flutning stórra kórverka. Undir hans stjórn flutti
Söngsveitin meðal annars Gloriu Vivaldis, Nelson-messu Haydns, Sálumessu Mozarts og vorið
2000 stjórnaði Bernharður
frumflutningi Söngsveitarinnar,
Selkórsins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Immanúel eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
Bernharður hefur lagt áherslu á að kórinn
hafi ætíð á takteinum íslensk
og erlend lög til flutnings
með eða án undirleiks
og hefur hann stjórnað kórnum á nokkrum
tónleikum með slíkri efnisskrá undanfarin ár. Skemmst er að
minnast söngferðalags kórsins til Ungverjalands
og Slóveníu í júní 2001 en þar var einmitt
sungin undir hans stjórn
fjölbreytt efnisskrá
veraldlegra og kirkjulegra verka.
Haustið 1999 gaf Söngsveitin út undir hans stjórn
geisladiskinn Heill
þér himneska orð og hefur
diskurinn hlotið góða dóma í
fjölmiðlum.
|